- teddi.org -
  Hvað er að gerast?
Valmynd  
 
mánudagurinn => 22. febrúar 2010
13:45
var að koma heim aftur eftir að hafa eytt 17 dögum í dublin á írlandi. var að vinna í netdeildinni hjá google við allskonar spennandi verkefni í sambandi við netkerfið. kíkti á nokkra leiki í rugby í six nations keppninni, reyndi að fá miða á írland - ítalía en það var uppselt svo ég horfði á leikinn á pub nálægt leikvanginum. stórfeginn að ég flaug heim á föstudaginn því í dag eru gott sem öll flug hjá lufthansa niðri útaf verkfalli flugmanna..

föstudagurinn => 5. febrúar 2010
22:54
við Julia skruppum yfir jól og áramót til mexico, belize og guatemala í 3 vikur.. ferðin var þrælgóð, þó fluginu frá frankfurt hafi verið seinkað um ca 8 tíma vegna smá snjókomu.. svo týndist farangurinn okkar á leiðinni þangað og til baka og get ég því ekki mælt með continental flugfélaginu. tókum helling af myndum og þær má sjá hérna.

föstudagurinn => 18. desember 2009
20:47
fór í þarsíðustu viku til madrid á spáni.. var þarna að vinna í 6 daga við að setja upp nokkra netþjóna. skoðaði miðbæinn örlítið inná milli, gleymdi myndavélinni heima svo ég tók bara nokkrar myndir á farsímann. myndir hérna.

sunnudagurinn => 1. nóvember 2009
18:49
var að koma frá moscow í rússlandi, stutt ferð í 3 daga, skoðaði stærstu símastöðina þeirra þarna og fór svo og lék túrista restina af tímanum. heimsótti lenin og skoðaði rauða torgið, rölti svo aðeins um nágrennið. myndir hérna.

mánudagurinn => 7. september 2009
19:37
fór núna í síðustu viku til dublin á írlandi, þar sem ég var boðinn velkominn heim af írskum þjóðlagasöngvara. fór líka í guinness bruggverksmiðjuna og skoðaði ýmsa ferðamannastaði þarna. tilgangur ferðarinnar var þó til að fara á netkerfis námskeið, fengum kennara frá juniper til að kenna okkur á þessa routera, þrælgott námskeið.

laugardagurinn => 27. júní 2009
17:00
fór um daginn til munchen í eina viku til að setja upp eina afritunarstöð.. gisti a þrælfínu hóteli rétt hjá miðbænum og fór út að borða á polyneskum veitingarstað.. mjög sérstakur staður.

sunnudagurinn => 22. mars 2009
22:30
skrapp til englands núna fyrir nokkrum vikum, 2ja vikna námskeið hjá sun microsystems.. lærði að setja upp, viðhalda og stjórna stærstu afritunarstöðinni þeirra. skoðaði london þar á milli, fór í eina af þessum tveggja hæða rútum með engum topp á.. svo allir fengu kvef daginn eftir enda frekar kalt í london þann daginn, síðustu helgi fórum við julia svo til ítalíu í 5 daga á snjóbretti í dolomit fjöllunum, reyni að setja nokkrar myndir inná myndasíðuna eftir nokkra daga. allt gott að frétta úr vinnunni, kláraði að "þýða" google calculator með öðrum íslending í vinnunni.. svo núna getið þið t.d. googlað 100 mílur í kílómetrum á google.is :)

Eldri Atburðir